Frumkvöðlasetri komið á fót á Djúpavogi
Nýtt frumkvöðlasetur, Djúpið, tekur til starfa á Djúpavogi á næstu dögum. Setrið verður bæði opið námsmönnum og frumkvöðlum sem vinna að nýsköpunarverkefnum.Alfa Freysdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri en hún kynnti setrið og nafn þess á opnum fundi á Djúpavogi í síðustu viku.
Gert er ráð fyrir að starfsemi hefjist formlega 1. október en setrið er samstarfsverkefni Austurbrúar, Djúpavogshrepps og AFLs starfsgreinafélags.
Skrifað var undir samkomulag um setrið í vor en í tilkynningu segir að tilgangur þess sé að styðja frumkvöðla við að hrinda hugmyndum sínum í framkvæmd og skapa þannig ný atvinnutækifæri á Djúpavogi og víðar í landshlutanum.