Kviknaði í út frá rafkerfi dráttarvélar
Bruni sem varð í vélaskemmu við Refsstað í Vopnafirði fyrir tveimur vikum hefur verið rakinn til bilunar í rafkerfi dráttarvélar sem stóð í skemmunni.Þetta staðfesti Jónas Wilhelmsson, yfirlögregluþjónn á Eskifirði, við Austurfrétt í dag.
Eldur varð fyrst laus í dráttarvélinni og búnaði hennar sem síðan varð til þess að eldur komst í aðra muni í skemmunni og loks skemmuna sjálfa.
Töluvert tjón varð í eldsvoðanum.