Þ.S. verktakar: Það hefur alltaf verið olíuskilja við þetta hús
Framkvæmdastjóri Þ.S. verktaka á Egilsstöðum er óhress með vinnubrögð Heilbrigðiseftirlits Austurlands sem hugðist beita fyrirtækið dagsektum þar sem olíuskilja væri ekki við húsnæði fyrirtækisins. Hann segir eftirlitið hafa verið með rangar teikningar í höndunum„Þegar ég keypti þetta hús var mér sagt að það væri olíuskilja við fráveituna," segir Þröstur Stefánsson, stjórnandi fyrirtækisins.
Eins og Austurfrétt greindi frá í vikunni gaf heilbrigðisnefnd Austurlands út heimild til að leggja dagsektir á fyrirtækið þar sem ekki væri olíuskilja við húsnæði þess.
Þröstur segir starfsmenn Heilbrigðiseftirlits Austurlands hafa verið með rangar teikningar í höndunum sem fengnar hafi verið hjá sveitarfélaginu Fljótsdalshéraði.
„Starfsmaður minn heimsótti skrifstofu Hitaveitu Egilsstaða og Fella sem fer með fráveitumálin. Þar komu teikningar sem sýndu olíuskiljuna. Við grófum beint niður á hana eftir teikningunni.
Hún var tæmd og mér er sagt að það hafi nánast ekkert verið í henni. Það hefur alltaf verið olíuskilja við þetta hús."