Vopnafjörður fær mestan byggðakvóta
Vopnafjörður er það byggðarlag á Austfjörðum sem fær mestan byggðarkvóta fyrir fiskveiðiárið 2014/15. Sjö byggðarlög á svæðinu fá kvóta.Vopnfirðingar fá 300 tonna þorskígildiskvóta sem er hámarksúthlutun. Fimm önnur byggðarlög á landinu fá sama skammt.
Alls koma ríflega 1000 tonn af yfir 6100 í hlut Austfirðinga. Djúpavogsbúar fá 194 tonn, Stöðfirðingar 184, Seyðfirðinga 141, Borgfirðingar 101, Breiðdælingar 90 og Mjófirðingar 15.
Formlega er það sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra sem tekur ákvörðun um úthlutun kvótans en hún byggir á upplýsingum frá Fiskistofu um samdrátt í botnfiskafla, botnfiskaflamarki og vinnslu botnfisks annars vegar og samdrætti í rækju- og skelvinnslu hins vegar frá fiskveiðiárinu 2004/2005 til fiskveiðiársins 2013/2014.
Alls er byggðakvóta úthlutað til 31 sveitarfélags og í þeim fengu 48 byggðarlög úthlutun.
Hámarksúthlutun til byggðarlags er 300 þorskígildistonn og fá sex byggðarlög það hámark. Lágmarksúthlutun er 15 þorskígildistonn, eigi byggðarlag á annað borð rétt til úthlutunar, og fá átta byggðarlög þá úthlutun.