Aldrei stærra skip lagst að bryggju á Norðfirði
Flutningaskipið Wild Peony, sem lagðist að bryggju í Norðfjarðarhöfn á sunnudagsmorgun, er hið stærsta sem þangað hefur komið.Skipið er skráð í Panama og smíðað árið 1998. Það er 140 metrar að lengd, 22 metrar á breidd, ristir 8,7 metra og er 9859 brúttótonn.
Að því er fram kemur á vef Síldarvinnslunnar gekk vel að koma skipinu inn í höfnina og að bryggju en framkvæmdir við stækkun Norðfjarðarhafnar eru langt komnar.
Skipið kom frá Akureyri og þar áður Gíbraltar en það lestar á Norðfirði rúmlega 3000 tonn af makríl sem flytja á til Nígeríu.
Mynd: Kristín Hávarðsdóttir