„Ætli ég geri ekki 40.000 kökur í ár“. Laufabrauðs verðtíðin er hafin í Fellabakaríi

Bjorgvin bakariÞað er óhætt að segja að laufabrauðs vertíðin sé hafin í Fellabakaríi í Fellabæ, en starfsfólk þar vinnur nú hörðum höndum að pakka þeim og koma þeim í verslanir, til að auðvelda okkur hinum undirbúninginn fyrir jólin.

„Við byrjuðum fyrir hálfum mánuði síðan og þetta er bara fastur liður í jólaundirbúningnum og ég er ekki frá því að maður komist í smá stemningu þegar jólalögin fara að heyrast í útvarpinu. En þetta er ekkert annað en vertíð. Ætli ég geri ekki um 40.000 kökur í ár.“ Segir Björgvin Kristjánsson, bakari og eigandi Fellabakarís í samtali við Austurfrétt.

Laufabrauðin sem Björgvin selur í búðum eru afar hentug. Þau eru tilbúin til að skreyta og steikja, en að sjálfsögðu selur hann líka tilbúin í bakaríinu.

En hvað með smákökurnar? Þær hafa dottið út hjá mér hægt og bítandi.Maður er ekkert að keppa við risana í einhverjum smákökum. Það er bara laufabrauðið og botnlaus hamingja hjá okkur í Fellabakaríi,“ segir bakarinn að lokum.

Mynd: Björgvin Kristjánsson, bakari.



Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.