Símasambandslaust í tvo daga á Efra-Jökuldal
Símasambandslaust hefur verið á bæjum á Efra-Jökuldal í dag og í gær eftir bilun á Gagnheiði. Unnið er að viðgerð samkvæmt upplýsingum frá Mílu.Sigurrós Jónsdóttir, samskiptastjóri fyrirtækisins, segir að önnur bilun hafi komið upp þegar verið var að endurnýja búnað á Gagnheiði.
Við það varð símstöðin á Hákonarstöðum sambandslaus og um leið allir þeir bæir sem tengjast henni. Bæði datt út fastlínusamband sem og GSM-samband og netsamband.
Varahlutir voru sendir austur með fyrsta flugi í morgun og er unnið að viðgerð að sögn Sigurrósar.
Ekki er nema um þrjár vikur síðan bæir á svæðinu voru án sambands í tvo sólarhringa. „Búnaðurinn lætur helst undan í vondum veðrum og það hefur verið raunin í þessu tvö skipti.
Síðast gekk viðgerðarmönnum mjög illa að komast á staðinn vegna veðurs og því tók tíma að koma sambandinu á."