Jón Björnsson verður framkvæmdastjóri Fjórðungsmóts Austurlands
Á Egilsstöðum var í gærkvöldi skrifað undir samstarfssamning við Jón Björnsson um að taka að sér framkvæmdastjórn fyrir Fjórðungsmót hestamanna á Austurlandi árið 2015 sem haldið verður í Stekkhólma á Fljótsdalshéraði 2.-5. júlí næstkomandi. Fjórðungsmót Austurlands er stærsti og elsti reglulegi viðburðurinn í hestamennsku á svæðinu og er haldið á fjögurra ára fresti.Jón Björnsson er Akureyringur og félagi í Hestamannafélaginu Létti. Hann er mörgum hestamönnum að góðu kunnur, enda hefur hann lagt stund á hestamennsku, ræktun og rekstur tengdan hestamennsku til margra ára. Margir hafa eflaust séð hann á hestamannamótum um allt land með myndavélina sína, enda er hann einn drjúgasti hestaljósmyndari landsins.
„Ég er mjög spenntur fyrir þessu verkefni. Það er góð stemning fyrir mótinu og aðstæður í Stekkhólma eru frábærar,“ segir Jón.
Aðspurður um mikilvægi Fjórðungsmótsins segir Jón: „Mér finnst býsna mikilvægt að hestamennskan á Norðausturlandi öllu hafi þennan vettvang til að sýna sín bestu hross. Breiddin er mikil á svæðinu og ef okkur tekst ætlunarverk okkar, sem er að laða að öll þessu góðu hross og hestaáhugamenn allt frá Dalvík til Hornafjarðarsveita þá veit ég að framtíð Fjórðungsmóta á Austurlandi er björt.“
Jón segir aðalmarkmiðið vera að gera þetta að skemmtilegasta móti ársins í hestamennskunni. „Fjölskylduvænt og skemmtilegt er það sem við vinnum útfrá, með að sjálfsögðu alvöru keppni.“