Glæsilegur Venus í Vopnafjarðarhöfn - Myndir

IMG 1122Nýtt uppsjávarskip HB Granda, Venus NS 150, kom til heimahafnar á Vopnafirði um hvítasunnuhelgina og á miðvikudag var haldin formleg móttaka, þar sem íbúum Vopnafjarðar og öðrum áhugasömum var gefinn kostur á að skoða þessa glæsilegu viðbót íslenska fiskiskipaflotans.

Vilhjálmur Vilhjálmsson forstjóri HB Granda, Sigurður Ingi Jóhannsson ráðherra sjávarútvegsmála og Ólafur Áki Ragnarsson sveitarstjóri á Vopnafirði fluttu ávörp þar sem þeir lýstu allir yfir mikilli ánægju með nýja skipið. Séra Stefán Már Gunnlaugsson blessaði svo skipið áður en því var formlega gefið nafnið Venus.

Fjöldi fólks lagði leið sína niður að höfn og fylgdist með því sem fram fór. Síðan var öllum boðið að stíga um borð, virða fyrir sér hina glæsilegu nýsmíði og þiggja léttar veitingar. Blaðamaður Austurfréttar var á staðnum og tók meðfylgjandi myndir.

Nánar verður fjallað um komu Venusar NS 150 til Vopnafjarðar í næsta tölublaði Austurgluggans

IMG 1037IMG 1050IMG 1056IMG 1072IMG 1082IMG 1101IMG 1104IMG 1129IMG 1133IMG 1138IMG 1140IMG 1142IMG 1147IMG 1153IMG 1158IMG 1160IMG 1162rsz img 1093

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar