Ný ísbúð opnar á Egilsstöðum

IMG 1386Í gær opnaði ný ísbúð í Miðvangi á Egilsstöðum. Ísbúðin heitir Salt og er rekin af sömu aðilum og reka veitingastaðinn Salt, sem er í sama húsnæði.

Framkvæmdir hafa staðið yfir í nokkurn tíma en stefnt var að opnun um helgina og það tókst.

Boðið er upp á ís í vél frá Kjörís, meðal annars „gamla ísinn“ eða mjólkurís. Þá er einnig hægt að fá kúluís frá Kjörís með allskonar bragðtegundum.

Á næstunni verður svo boðið upp á heimatilbúinn kúluís með hinum ýmsu bragðtegundum og ljóst er að austfirskir ísunnendur geta hlakkað til sumarsins.

Blaðamenn Austurfréttar lögðust í mikla rannsóknarblaðamennsku í gær og fengu að smakka ís úr vél með mangóbragði. Hann þótti smakkast með ágætum.

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.