Ný ísbúð opnar á Egilsstöðum
Í gær opnaði ný ísbúð í Miðvangi á Egilsstöðum. Ísbúðin heitir Salt og er rekin af sömu aðilum og reka veitingastaðinn Salt, sem er í sama húsnæði.Framkvæmdir hafa staðið yfir í nokkurn tíma en stefnt var að opnun um helgina og það tókst.
Boðið er upp á ís í vél frá Kjörís, meðal annars „gamla ísinn“ eða mjólkurís. Þá er einnig hægt að fá kúluís frá Kjörís með allskonar bragðtegundum.
Á næstunni verður svo boðið upp á heimatilbúinn kúluís með hinum ýmsu bragðtegundum og ljóst er að austfirskir ísunnendur geta hlakkað til sumarsins.
Blaðamenn Austurfréttar lögðust í mikla rannsóknarblaðamennsku í gær og fengu að smakka ís úr vél með mangóbragði. Hann þótti smakkast með ágætum.