Varað við stormi á Austfjörðum í kvöld
Veðurstofan varar við hvassviðri á Austurlandi í kvöld en kröpp lægð gengur yfir landið í dag. Lægðinni fylgir einnig talsverð úrkoma.Veðurstofan gaf út viðvörun vegna lægðarinnar í morgun en útlit er fyrir storm á Austurlandi seint í kvöld og í nótt. Sérstaklega er varað við snörpum hviðum á svæðinu frá Öræfum á Vopnafirði.
Samkvæmt spám er gert ráð fyrir að hvessa taki af vestri í kvöld og vindhraðinn verði að jafnaði 15-23 m/s en snúist síðan til suðvesturs og lægi í fyrramálið.
Trausti Jónsson, veðurfræðingur, vekur athygli á lægðinni á bloggsíðu sinni. Hann bendir á að evrópskir veðurfræðingar hafi skipt um skoðun á lægðinni nokkrum sinn, fyrst talið hana stóra, síðan litla og síðast mjög stóra.
Spáð sé mjög miklum loftþrýstingi yfir Norðausturlandi. Slíkur þrýstingur sé vart finnanlegur í gagnasafni Veðurstofu Íslands, nema í október 1963 og í því veðri hafi orðið talsvert tjón.
Mynd: Ómar Bogason