Rafmagn er komið á aftur í Neskaupstað

Í hádeginu tókst að spennusetja Neskaupsstaðarlínu 1, milli Eskifjaðrar og Neskaupstaðar, að nýju en hún sló út á níunda tímanum í morgun.


Í tilkynningu frá Landsneti segir að erfiðlega hafi gengið kanna ástæðu bilunarinnar vegna veðurs en rétt fyrir hádegi kom í ljós að fok aðskotahluta á spenna aðveitustöðvarinnar við Neskaupstað skýrði útsláttinn.

Þegar búið var að fjarlæga þá tókst að spennusetja línuna að nýju rétt upp úr hádegi og er rafmagn nú komi´aða nýju í Neskaupstað.

Eftir að tilraunir til að setja línuna inn aftur báru ekki árangur í morgun var varaafl fyrir bæinn ræst. Rafmagn var rafmagn komið á um klukkan hálf tíu en skammtanir í gildi.

Ekki hafa orðið aðrar truflanir í raforkuflutningskerfi Landsnets vegna óveðursins eystra í nótt og í morgun nema straumlaust varð á Seyðisfirði klukkan fjögur í nótt, þegar Seyðisfjarðalína 1 leysti út, en rafmagn var komið aftur á þar um átta mínútum seinna.

Vegna óveðursins er Landsnet með aukinn viðbúnað á bæði Austur- og Norðurlandi.

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar