Ætla að kanna hug íbúa til sameiningar
Forsvarsmenn sveitarfélaganna Fljótsdalshéraðs, Djúpavogshrepps, Seyðisfjarðarkaupstaðar, Borgarfjarðarhrepps, Vopnafjarðarhrepps og Fljótsdalshreppur eru að ná samkomulagi um gera könnun fyrir kosningar í vor um hug íbúa sveitarfélaganna til sameiningar.Samkvæmt drögum að könnuninni verður annars vegar spurt út í hugmyndir um sameiningu, hins vegar áhuga á sveitastjórnarmálum.
Bæði verður að hægt um að velja um hvort svarendur vilji að sveitarfélögin verði sameinuð öll í eitt eða hægt að segja sína skoðun á hvaða sameiningu menn vilja helst.
Einnig verður kannaður almennur áhugi á sveitastjórnarmálum en í inngangi að könnuninni kemur fram að minnkandi þátttaka í sveitastjórnarmálum sé hluti ástæðunnar fyrir að áhugi á sameiningu sé kannaður.
Stefnt er að því að könnunin verði send út á næstu dögum og að niðurstöður hennar liggi fyrir í byrjun apríl. Samkvæmt síðustu fundargerð samráðsnefndar sveitarfélaganna verður könnunin send út í pósti til allra íbúa sveitarfélaganna sem náð hafa 16 ára aldri.