Auglýst eftir héraðsdómara
Innanríkisráðuneytið hefur auglýst embætti dómara við Héraðsdóm Austurlands laust til umsóknar. Í auglýsingu sem birtist í blöðum í dag er gert ráð fyrr að dómari verði skipaður frá 1. september.
Halldór Björnsson, núverandi dómari, hefur verið hér eystra frá árinu 2008. Í auglýsingunni er meðal annars óskað eftir að umsækjendur skili inn afriti úr dómum úr málum sem þeir hafa flutt og ritrýndum fræðigreinum.