Bæjarráð Seyðisfjarðar krefst aðgerða í snjóflóðavörum

Bæjarráð Seyðisfjarðar krefst þess að ofanflóðasjóður verði fjármagnaður að fullu og gert kleift að uppfylla skyldur sínar. Þetta kemur fram í bókun bæjarráðsins á síðasta fundi þess.

Í bókunni segir að bæjarráð minnir enn og aftur á að Seyðisfjörður er einn þeirra staða sem kallað hefur eftir vörnum bæði fyrir snjó- og aurflóðum. Sérfræðingar hafa rannsakað og skilað skýrslum, forhönnun varnargarða liggur fyrir en fjármagnið vantar.

Jafnfram kemur fram að bæjarráðið taki undir harðorða bókun Samband íslenskra sveitarfélaga um ofanflóðavarnir. Í þeirri bókun segir m.a. að stjórn sambandsins átelur að ekki hafi verið staðið við loforðin sem þjóðinni voru gefin um uppbyggingu ofanflóðavarna fyrir aldarfjórðungi, eftir að snjóflóðin féllu í Súðavík og Flateyri.

„Enn standa ólokin brýn verkefni á hættusvæðum þar sem mannslíf eru í húfi. Að óbreyttu verður þessum framkvæmdum ekki lokið fyrr en líður á síðari hluta þessarar aldar. Við það verður alls ekki unað enda býður sá hægagangur sem verið hefur í uppbyggingunni heim hættu á mannskæðum slysum í þéttbýli,“ segir stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga sem einnig skorar á ríkisstjórn Íslands að ljúka uppbyggingu ofanflóðavarna sem fyrst og setja sér metnaðarfull markmið í þeim efnum.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.