Bilaður strengur olli rafmagnsleysi
Rafmagn á að vera komið aftur alls staðar á Egilsstöðum og næsta nágrenni. Rafmagn fór af rétt fyrir klukkan þrjú og var rafmagnslaust í rúmar tuttugu mínútur.Samkvæmt upplýsingum frá bilanavakt Rarik á Austurlandi er ástæða rafmagnsleysisins talin hafa verið bilun í rafstreng í Fellabæ. Búið er að einangra bilunin og á rafmagn því að vera komið alls staðar á aftur.
Bilunin hafði nokkuð víðtæk áhrif því rafmagnslaust varð á Egilsstöðum, í Fellabæ, Fellum og fram-Tungu. Rafmagnið fór af klukkan 14:59 og var komið á aftur 15:22 samkvæmt upplýsingum Rarik.
Úr verslun Nettó á Egilsstöðum í dag. Mynd: Hlynur Sveinsson