Deiliskipulag fyrir Selskóg kynnt á Facebook
Vegna COVID verður deiliskipulag fyrir Selskóg kynnt á Facebook í dag. Þetta kemur fram á heimasíðu Fljótsdalshéraðs.Á heimasíðunni segir að vakin sé athygli á því að í dag, þriðjudaginn 1. september klukkan 17:00 verður haldinn kynningarfjarfundur um tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Selskóg. Vegna samkomutakmarkana og sóttvarnarráðstafana fer kynningin fram í gegnum Facebook síðu Fljótsdalshéraðs.
Þar kemur einnig fram að hægt verði að senda inn rafrænar fyrirspurnir á meðan á fundinum stendur og verður þeim svarað að kynningu lokinni. Upptökuna má síðar nálgast á heimasíðu Fljótsdalshéraðs.
Myndin er af vef Skógræktarfélags Íslands.