Eftirlitsflygildin kyrrsett eftir óhapp
Stofnanir Evrópusambandsins hafa fyrirskipað að ómönnuð flygildi af gerðinni Hermes 900 verði kyrrsett á jörðu niður uns annað verður ákveðið. Ákvörðunin kemur í kjölfar þess að slíkt flygildi varð að nauðlenda á Grikklandi í byrjun árs. Flygildi sömu gerðar var á Egilsstöðum í fyrrasumar.Þetta kemur fram í svari Adina-Ioana Vălean, samgönguráðherra sambandsins við fyrirspurn þýska Evrópuþingmannsins Özlem Demirel.
Flygildið sem nauðlenti á eyjunni Krít þann 8. janúar síðastliðinn var gert út á vegum Evrópsku siglingaöryggisstofnunarinnar (EMSA), líkt og flygildið sem var á Egilsstöðum í fyrrasumar. Forstjóri stofnunarinnar kom austur til að skoða flygildið, enda var þetta í fyrsta sinn sem stofnunin hafði slíkt flygildi til umráða og lýsti ánægju sinni með það. Stofnunin hefur síðan sent þau á loft í fleiri verkefni víðs vegar um álfuna.
Hér var flygildið á vegum Landhelgisgæslunnar og nýtt til eftirlits á hafinu í kringum landið en tækifærið var einnig nýtt til að safna upplýsingum um hvernig ómönnuð loftför stæðu sig við krefjandi aðstæður eins og hérlendis.
Portúgalska fyrirtækið leigir Hermes 900-flygildin og tæknifólk frá framleiðanda þess, hinu ísraelska Elbit og flýgur þeim á vegum EMSA. Flygildið í Grikklandi var á eftirlitsflugi fyrir landamæraeftirlitsstofnum Evrópusambandsins, Frontex.
Í svari Vălean kemur fram að flygildið hafi verið nýkomið á loft frá Tympaki flugvelli á Krít þegar nemar þess hafi sent frá sér athugasemdir. Strax hafi verið ákveðið að lenda flygildinu sem hafi skemmt töluvert við það á skrokki, vængjum og nemum. Hvorki hafi orðið meiðsli á fólki né skaði á flugbrautinni. Flugmálayfirvöld hafi strax verið látin vita og þau hafið rannsókn á óhappinu sem sé enn í gangi.
Tekið er fram að ekki hafi verið um að ræða brotlendingu heldur tæknilega séð mjög harða lendingu. Búið er að gera við flygildið sem skemmdist á Krít en það hefur ekki farið aftur á loft því í kjölfar óhappsins ákvað EMSA ákveðið að hætta öllum aðgerðum með Hermes 900 uns rannsóknarniðurstöður liggja fyrir og endurbætur hafa farið fram.