Fangelsisdómur fyrir ítrekaðan akstur án réttinda
Héraðsdómur Austurlands hefur dæmt karlmann í 30 daga fangelsi fyrir að hafa ítrekað haldið áfram að keyra þótt hann hafi haustið 2020 verið sviptur ökuréttindum.Nýjasta tilfellið er frá júní í fyrra þegar maðurinn var gripinn á 113 km/klst á þjóðveginum um Jökuldal, þar sem er 90 km/klst hámarkshraði og án réttinda að auki. Maðurinn viðurkenndi sök fyrir dómi.
Maðurinn var sviptur ökuréttindum haustið 2020 fyrir að hafa ekið undir áhrifum fíkniefna. Sama ár var hann tvisvar í viðbót tekinn fyrir akstur án réttinda.
Af þessum orsökum þótti ekki hægt að skilorðsbinda refsinguna. Maðurinn var einnig dæmdur til að greiða 50.000 króna sekt og rúmar 111 þúsund krónur í málsvarnarlaun.