Fastur flutningabíll tafði umferð um Oddsskarð
Um eins og hálfs tíma töf varð upp úr hádegi í gær á umferð um Oddskarð. Krapi var á veginum og erfið færð.
Frá þessu er sagt á Facebook-síðu hóps sem berst fyrir nýjum göngum milli Norðfjarðar og Eskifjarðar. Þar kemur fram að flutningabíll hafi setið fastur í skarðinu og rúta sem ætlaði framhjá hafi farið út af. Fjöldi vegfarenda hafi tafist vegna þessa.