Ferðamanns leitað í Norðurdal Fljótsdals
Björgunarsveitir voru kallaðar út í nótt, upp úr miðnætti til að leita ferðamanns sem var einn á ferð, inn af Fljótsdal. Maðurinn kom fram skömmu eftir að leit hófst, laust fyrir klukkan 2 í nótt.
Maðurinn var að skoða sig um á athafnasvæði Kárahnjúkavirkjunar austan Snæfells við Hraunaveitu um miðjan dag í gær og hugðist ganga út Norðurdal í Fljótsdal.
Félagi mannsins ætlaði að taka á móti honum þegar hann kæmi til byggða en þegar hann skilaði sér ekki á réttum tíma voru björgunarsveitir á Héraði kallaðar út til leitar.
Maðurinn fannst á gangi við bæinn Glúmstaðasel í Norðurdal Fljótsdals skömmu fyrir klukkan 2 í nótt. Það voru björgunarsveitarmenn úr Fljótsdal sem sáu til mannsins austan Jökulsár í Fljótsdal frá Eyrarseli og sóttu hann og komu honum til byggða.