Ferðalangar strandaglópar í Álftafirði
Björgunarsveitin Bára á Djúpavogi hefur verið kölluð út til aðstoðar ferðalöngum í Álftafirði sem treysta sér ekki áfram vegna veðurs. Á Vopnafirði hefur björgunarsveitin Vopni þurft að hefta fok.Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörgu eru þrír bílar strand í Álftafirðinum. Þar er mikið rok og grjótfok.
Nokkuð hefur verið um verkefni hjá sveitinni á Djúpavogi í morgun vegna foks á lausamunum. Sveitinni þar og á Höfn í Hornafirði hafa frá í nótt borist minnst þrjú útköll vegna ferðalanga sem eru fastir á veginum þar á milli. Vegurinn um Hvalnesskriður er merktur ófær vegna óveðurs.
Þá hefur björgunarsveitin Vopni á Vopnafirði fengið nokkur verkefni síðasta klukkutímann sem snúast aðallega um að hemja þakplötur og þakskífur sem eru að fjúka.
Til viðbótar þessu hefur Austurfrétt spurnir af garðskúr á Egilsstöðum sem fór í sundur í hvassviðrinu í morgun.
Mynd úr safni.