Fimm ný smit staðfest
Fimm ný Covid-19 smit voru staðfest á Austurlandi í gær. Allir hinna smituðu voru í sóttkví.Í tilkynningu aðgerðastjórnar almannavarna á Austurlandi er bent á að líklegt sé að fleiri smit muni greinast á næstunni hjá fólki í sóttkví því það tengist einstaklingum sem greinst hafa með smit. Góðs viti sé að smitin greinist ekki utan sóttkvíar.
Sýni sem tekin voru í dag bíða þess enn að verða send suður til Reykjavíkur til greiningar þar sem ekkert var flogið í dag. Þau fara suður með fyrstu vél í fyrramálið og er greiningar vænst á morgun.
Á Austurlandi eru nú 15 í einangrun og 25 í sóttkví.
Aðgerðastjórnin brýnir Austfirðinga til að sinna áfram persónubundnum sóttvörnum og mæta í sýnatöku finni það fyrir einhverjum einkennum.