Fjölbreytt verkefni hlutu styrki á Borgarfirði
Alls hlutu fimmtán verkefni á Borgarfirði styrki úr frumkvæðissjóði Brothættra byggða fyrir sveitarfélagið í ár, en styrkveitingin fór fram á íbúafundi á dögunum. Að mati þeirra sem koma að verkefninu hefur vinnan undir hatti Brothættra byggða skilað miklum árangri nú þegar.Alls var 14,4 milljónum úthlutað í þetta sinn og runnu fjármunir til 15 fjölbreyttra verkefna en alls var sótt um 35 styrki. Kom fram í máli fulltrúa Byggðastofnunar að flóra verkefna og fjöldi þeirra væri með mesta móti ef horft væri til sambærilegra átaksverkefna og ríkir mikil ánægja með framgang Borgarfjarðarverkefnisins, sem nefnist Betri Borgarfjörður.
Böð, bús, belgur og bíldekk
Stærsta einstaka styrkinn, 5 milljónir króna, hlaut Borgarfjarðarhreppur til verkefnisins Samfélagsmiðstöðin Fjarðarborg. Markmið þess er að ráðast í endurbætur og breytingar á félagsheimilinu Fjarðarborg til að það nýtist betur árið um kring og geti hýst fjölþætta starfsemi. Er þar meðal annars horft til skrifstofuaðstöðu sem einstaklingar geta leigt til að sinna verkefnum í fjarvinnu, líkamsræktaraðstöðu og endurnýjunar og viðhalds á ýmsum hlutum hússins.
Gistiheimilið Blábjörg hlaut samtals 2 milljónir króna, annars vegar til þróunar á náttúruböðum og hins vegar til að koma á fót framleiðslu á handverksgini. Sporður hf. hlaut styrk upp á 1 milljón til að fjárfesta í tækjum til að framleiða bitafisk og Ungmennafélag Borgarfjarðar sömu fjárhæð til að koma upp svonefndum ærslabelg á staðnum. Þá hlaut Jón Helgason styrk upp á 900 þúsund til að koma upp aðstöðu til bíla- og dekkjaviðgerða á Borgarfirði, nokkuð sem ekki hefur verið til staðar á staðnum fram að þessu.
Margt hefur áunnist
Í fréttatilkynningu frá íbúafundinum kemur meðal annars fram að mikill árangur hefði náðst með verkefninu Betri Borgarfjörður og að mörg þeirra markmiða sem sett hefðu verið fram í upphafi þess, árið 2018, hefðu þegar náðst að hluta til eða öllu leyti. Er þar nefnt til sögunnar að haustið 2019 hefði aftur verið ráðinn hjúkrunarfræðingur til starfa á Borgarfjörð, sem hefur nú einnig aðgang að fjarlækningatæki sem bæti heilbrigðisþjónustu við íbúa til mikilla muna. Verslun hefði verið komið á fót á ný sem fagnar um þessar mundir tveggja ára afmæli, stórstígar framfarir hafi orðið í samgöngumálum og meira sé á döfinni, ný fyrirtæki hefðu sprottið upp á staðnum og stefnt sé að byggingu tveggja nýrra parhúsa á staðnum þar sem verði leiguíbúðir.
Á fundinum var farið yfir markmið og stöðu verkefnisins og íbúum gafst færi á að bæta við nýjum markmiðum og endurskoða þau sem fyrir eru. Þá sendi fundurinn frá sér ályktun um sjávarútvegsmál.
Heildarlisti styrkþega 2020
Blábjörg Guesthouse |
Þróun á náttúrubaði |
1.050.000 |
2020 |
Blábjörg Guesthouse |
Vöruþróun á handverksgini |
950.000 |
2020 |
Trausti Hafsteinsson |
Sumarbúðir á Borgafirði |
350.000 |
2020 |
Fjarðarhjól ehf. |
Hjólaparadísin Borgafjörður |
300.000 |
2020 |
Ferðamálahópur Borgarfjarðar |
Borgarfjörður fyrir þig 2020 |
500.000 |
2020 |
Borgarfjarðarhreppur |
Samfélagsmiðstöðin Fjarðarborg |
5.000.000 |
2020 |
Minjasafn Austurlands |
Skráning muna á Lindarbakka |
510.000 |
2020 |
Teikniþjónustan Jafnóðum |
Nýlundabúðin |
700.000 |
2020 |
Guðrún Benónýsdóttir og Andri Björgvinsson |
Hafnarhús eystra – sýningaröð |
700.000 |
2020 |
Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir |
Lagasmíðar á Borgarfirði eystra |
500.000 |
2020 |
Íslenskur dúnn ehf. |
Þvottur æðardúns |
750.000 |
2020 |
Jón Helgason |
Bíla- og dekkjaviðgerðir |
900.000 |
2020 |
Sporður hf. |
Tækjakaup til harðfiskverkunar |
1.000.000 |
2020 |
Christer Magnusson |
Púttvöllur |
190.000 |
2020 |
Ungmennafélag Borgarfjarðar |
Ærslabelgur |
1.000.000 |
2020 |