Fjórar einkaþotur á Egilsstaðaflugvelli
Þeir sem leið hafa átt framhjá flugvellinum á Egilsstöðum eftir hádegi í dag hafa margir veitt því athygli að fjórar einkaþotur eru staddar á vellinum í dag. Þrjár þeirra eru í eigu breska auðjöfursins Jim Ratcliffe.Vélar Ratcliffe bera einkennisstafina M-INTY, M-OVIE og M-USIC. Á alþjóðlegum flugsíðum má finna upplýsingar um síðustu viðkomu staði vélanna.
Samkvæmt þeim komu vélarnar til landsins seinni partinn í gær frá flugvelli á suðurströnd Bretlands. Dagana þar á undan höfðu þær flakkað milli þess svæðis og Nice á suðurströnd Frakklands, en Ratcliffe á knattspyrnulið borgarinnar. Eins og Austurfrétt hefur greint frá hafa félög á vegum Ratcliffe undanfarin ár keypt upp fjölda jarða í Vopnafirði.
Fjórða vélin, OE-IIX, kom fyrir hádegið frá Bern í Sviss. Hún er í eigu LaudaMotion Executive, sem Niki Lauda, fyrrum þrefaldur heimsmeistari í Formúla 1 kappakstri stofnaði.
Hinn austurríski Lauda lagði fyrir sig flugrekstur í eigin nafni að loknum kappakstursferlinum og náði ágætum árangri. Lauda lést í fyrra en áður hafði RyanAir keypt stóran hluta lággjaldaflugfélags hans. LaudaMotion Executive sérhæfir sig í leiguflugi fyrir fólk í viðskiptaerindum, að því er fram kemur á heimasíðu þess.
OE-IIX er af gerð Bombardier Challenger en hinar þoturnar þrjár Gulfstream.
Samkvæmt reglum um sóttvarnir þurftu þeir sem komu inn í landið með flugvélunum að fara í gegnum skimanir við Covid-19 veirunni. Frá og með deginum í dag þarf að greiða fyrir hverja skimun.