Framboðslisti Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð samþykktur

Framboðslisti Framsóknarfélags Fjarðabyggðar fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í maí var samþykktur á félagsfundi á Reyðarfirði í gærkvöldi. Bæjarstjórinn Jón Björn Hákonarson skipar fyrsta sætið en nýtt fólk, sem ekki hefur setið í bæjarstjórn er í næstu sætum.

„Framboðslisti Framsóknarflokksins í Fjarðabyggð er skipaður kraftmiklu fólki á öllum aldri með fjölbreyttan bakgrunn, sem kemur úr öllum byggðakjörnum Fjarðabyggðar. Á listanum fer saman víðtæk þekking, reynsla, kraftur og vilji til að vinna að eflingu samfélagsins í Fjarðabyggð, með öruggar grunnstoðir og fjölbreytt atvinnulíf í forgrunni.

Ég er spenntur fyrir kosningabaráttunni og þeirri vinnu sem framundan er með þeim öfluga hópi sem hér var kynntur,“ er haft eftir Jóni Birni í tilkynningu.

Flokkurinn fékk tvo bæjarfulltrúa í síðustu kosningum. Auk Jóns Björns hefur Pálína Margeirsdóttir verið bæjarfulltrúi, en hún færir sig niður í sjötta sætið. Stillt var upp á listann og leiddi Lars Gunnarsson vinnu uppstillingarnefndar.

Framboðslisti Framsóknar í Fjarðabyggð þannig skipaður.

1. Jón Björn Hákonarson bæjarstjóri, Norðfirði
2. Þuríður Lillý Sigurðardóttir bóndi, Reyðarfirði
3. Birgir Jónsson framhaldsskólakennari Eskifirði
4. Arnfríður Eide Hafþórsdóttir mannauðs- og öryggisstjóri, Fáskrúðsfirði
5. Elís Pétur Elísson framkvæmdastjóri, Breiðdal
6. Pálína Margeirsdóttir bæjarfulltrúi og ritari, Reyðarfirði
7. Bjarni Stefán Vilhjálmsson verkstjóri, Stöðvarfirði
8. Karen Ragnarsdóttir skólastýra, Norðfirði
9. Kristinn Magnússon rafvirki og íþróttafræðingur, Breiðdal
10. Margrét Sigfúsdóttir grunnskólakennari, Mjóafirði
11. Ívar Dan Arnarsson tæknistjóri, Reyðarfirði
12. Tinna Hrönn Smáradóttir iðjuþjálfi, Fáskrúðsfirði
13. Þórhallur Árnason aðalvarðstjóri, Eskifirði
14. Guðfinna Erlín Stefánsdóttir forstöðumaður og stuðningsfulltrúi, Fáskrúðsfirði
15. Bjarki Ingason rafvirkjanemi, Norðfirði
16. Bjarney Hallgrímsdóttir grunnskólakennari, Eskifirði
17. Jón Kristinn Arngrímsson matráður, Reyðarfirði
18. Elsa Guðjónsdóttir sundlaugavörður, Fáskrúðsfirði

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar