Framkvæmdastjóraskipti hjá Þekkingarneti Austurlands

gudrun_aslaug_jonsdottir_tna.gif
Guðrún Áslaug Jónsdóttir, verkefnastjóri, verður ráðin tímabundið sem framkvæmdastjóri Þekkingarnets Austurlands frá og með 1. september til ársloka. Guðrún gengdi áður starfi verkefnastjóra rannsókna hjá ÞNA. Stefanía G. Kristinsdóttir fráfarandi framkvæmdastjóri verður í hálfu starfi sem verkefnastjóri ÞNA á sama tímabili og hættir störfum um næstkomandi áramót.  
 
Þessi breyting var samþykkt og staðfest á stjórnarfundi ÞNA fyrr í dag. Í yfirlýsingu stjórnarinnar segir að horfst sé til þess að stoðstofnanir á Austurlandi verði sameinaðar um áramót samanber vinnu og markmið starfshóps Sambands sveitarfélaga á Austurlandi um stoðstofnanir.  Verði af sameiningu mun framkvæmdastjóri sameinaðrar stofnunar taka við starfsemi ÞNA um áramót.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar