Framsókn fékk flest atkvæði á Vopnafirði
Talningu atkvæða er lokið á Vopnafirði. Framsóknarflokkurinn fékk flest atkvæði þar og Félagshyggjufólk næstflest. Þessir tveir listar stóðu saman að framboði seinast og hafa verið með meirihluta.
Úrslit eru sem hér segir:
B listi Framsóknarflokks, 172 atkvæði 37,2% og 3 menn kjörna.
D listi Sjálfstæðisflokks, 59 atkvæði 12,8% og 1 mann kjörinn.
K listi Félagshyggjufólks, 160 atkvæði 34,6% og 2 menn kjörna.
N listi Nýtt afl, 63 atkvæði 13,6% og 1 mann kjörinn.
Í seinustu kosningum fékk listi félagshyggjuflokks, sem einkum var myndaður var af núverandi B og K listum, 54% atkvæða en N - listi Nýs afls, sem einkum tengdist núverandi N og D lista, 46%
Úrslitin benda því til að meirihlutinn bæti við sig um 16 prósentustigum og manni. Hvort það sé vísir að samstarfi kemur í ljós á næstu dögum.
Hreppsnefndarfulltrúar 2010-2014:
Þórunn Egilsdóttir (B)
Bárður Jónasson (B)
Fjóla Dögg Valsdóttir (B)
Ólafur K. Ármannsson (K)
Sigríður Elfa Konráðsdóttir (K)
Björn Hreinsson (D)
Guðrún Anna Guðnadóttir (N)