Gríðarleg úrkoma í kortunum á föstudag
Blíðuveður hefur verið víða um Austurland í dag, einkum á Héraði. En búast má við skörpum umskiptum á morgun og hefur Veðurstofan sent frá sér viðvaranir.Varað er við úrhellisrigningu á morgun og er af því tilefni gefin út gul viðvörun sem gildir fyrir Austfirði. Tiltekið er að þar verði talsverð eða mikil rigning. Búast megi við auknu afrennsli og vatnavöxtum í ám og lækjum, sem eykur hættu á flóðum og skriðuföllum og getur valdið tjóni og raskað samgöngum. Þar sem aukin hætta er á skriðuföllum og grjóthruni eru ferðamenn beðnir um að sýna aðgát í fjalllendi og í nágrenni árfarvega. Einnig má búast við auknu álag á fráveitukerfi og fólk er því hvatt til að sýna aðgát og huga að niðurföllum til að forðast vatnstjón.
Sömuleiðis er gert ráð fyrir talsverðri rigningu á Austurlandi að Glettingi, en þó ekki svo að ástæða sé talin til að gefa út viðvörun á því svæði. Þá er spáð mjög slæmu veðri á Suðausturlandi en þar hefur verið gefin út appelsínugul viðvörun vegna mikils vinds en talið er að hann geti valdið farartækjum með eftirvagna vandræðum.
Aukin hætta á skriðuföllum
Birgir Örn Höskuldsson, vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir að á Austfjörðum séu ekki áhyggjur af vindi en það sé mikil úrkoma væntanleg.
„Það verður enginn aftaka vindur en það er rigningin sem við erum að vara við. Frá 8 í fyrramálið og fram eftir degi lítur út fyrir mjög mikla rigningu, einkum við ströndina, og uppsafnað gæti þetta orðið 80-90mm víða á innan við 18 tímum. Það er komið nálægt þeim viðmiðum sem við höfum varðandi hættu á skriðuföllum og því sendum við þetta frá okkur núna.“
Að sögn Birgis hefur tíðarfarið undanfarið bæði jákvæð og neikvæð áhrif á aðstæður. „Það hefur verið þurrt þannig að það er kannski ekki svo mikil væta í jarðveginum svo hann tekur þá kannski betur við. En á móti kemur að það er ennþá talsverður snjór í fjöllum sem getur bráðnað og þetta verður væntanlega fremur hlý úrkoma. Svo það getur í raun aukið hættuna á skriðuföllum.“
Birgir segir að sérfræðingar Veðurstofunnar muni fylgjast grannt með gangi mála og uppfæra viðvaranir og ráðleggingar eins og þurfa þykir. „Þetta getur verið úrkoma upp á 10mm á klukkustund á einstökum stöðum og það gefur fullt tilefni til að fylgjast vel með.“