Hlé gert á leit á sjó
Hlé hefur verið gert á leit á sjó að skipverja sem talinn er hafa fallið fyrir borð í Vopnafirði úr fiskiskipi sem kom þar til hafnar á mánudagsmorgun.Leitað hefur verið nær sleitulaust frá því á mánudag. Víðtæk leit var gerð í gær en dregið úr henni í dag. Aðstæður til leitar voru góðar í morgun en versnuðu lítillega um hádegið vegna vinds.
Þótt hlé hafi verið gert á leit á sjó gengur björgunarsveitafólk frá Vopnafirði enn fjörur. Ákvörðun um framhaldið í dag verður tekið á næstu mínútum en það ræðst af veðri.
Gert er ráð fyrir leit haldi áfram á morgun með svipuðu sniði og í dag. Ákvörðun um það verður tekin í fyrramálið.