Hvorki asi né átök: Kalli Sveins fékk hvatningarverðlaun Þróunarfélagsins

kallisveins_throunarfelag_web.jpg

Karl Sveinsson, útgerðarmaður á Borgarfirði, fékk hvatningarverðlaun Þróunarfélags Austurlands þegar þau voru afhent fyrir skemmstu. Karl hefur stundað útgerð á Borgarfirði í 35 ár en hann hefur einnig spreytt sig í öðrum atvinnugreinum, til dæmis gæsarækt og kaffihúsarekstri.

 


„Vinnulag Karls einkennist ekki af asa eða átökum heldur er byggt upp hægt og bítandi af öryggi og festu og vandað til allra verka. Hagsýni og hagkvæmni er í fyrirrúmi og rík ábyrgð gagnvart samfélaginu á Borgarfirði og viðskiptavinum fyrirtækisins er til sérstakrar fyrirmyndar,“ segir í rökstuðningi fyrir valinu.
 
„Rekstur Karls á Borgarfirði hefur verið atvinnulífi og samfélagi þar mjög mikilvægur í gegnum árin og jafnframt öðrum einstaklega góð fyrirmynd. Þó fer ekki á milli mála að skilyrði til reksturs hafa ekki alltaf verið góð þau ár sem Karl hefur rekið fyrirtæki sitt, en aldrei hefur uppgjöf eða barlómur einkennt starf hans. Í mótbyr hefur seglum verið hagað eftir vindi og skútu Karls miðar alltaf áfram hvernig sem vindar blása.“
 
Karl útskrifaðist sem fiskiðnaðarmaður frá Fiskvinnsluskólanum árið 1976. Þá hóf hann útgerð smábáta en byrjaði einnig að rækta gæsir og byggði upp gæsasláturhús sem hann rakt samhliða útgerðinni til ársins 1986.
 
Þegar forsendur fyrir gæsaræktinni brustu hóf Karl fiskvinnslu og þjónustu við útgerðarmenn á Borgarfirði. Þar eru nú 15 manns í vinnu en voru 25 þegar mest var fyrir um áratug. Meginvinnslan er í 1500 fermetra iðnaðarhúsi en Karl á fjögur önnur iðnaðarhús á staðnum og gerir út þrjá smábáta.
 
Fyrir tveimur árum keypti Karl lausafé og rekstur Álfasteins á staðnum og hóf rekstur kaffihúss. Þá á hann iðnaðarhúsnæði í Fellabæ og keypti nýverið 600 fermetra iðnaðarhúsnæði á Raufarhöfn.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.