Ítreka grímunotkun í verslunum
Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hefur ítrekað grímuskyldu, þar sem ekki er hægt að tryggja tveggja metra fjarlægð milli fólks, við verslunarrekendur á svæðinu. Aðgerðastjórnin telur æskilegt að viðskiptavinir verslana beri almennt grímur fyrir vitum sér.Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðastjórnar. Þar kemur fram að reglunni hafi ekki alltaf verið fylgt, meðal annars á annatíma matvöruverslana. Þess vegna hafi hún verið áréttuð við eigendur verslana en einnig sé nauðsynlegt að ítreka hana við íbúa.
„Markviss grímunotkun okkar í verslunum og annars staðar þar sem erfitt er að tryggja 2 m fjarlægðarmörk getur því orðið eitt af því sem tryggir þig og þá sem þú umgengst og síðast en ekki síst áframhaldandi gott ástand á svæðinu. Má segja að það gildi á öllum tímum í matvöruverslunum en sérstaklega á annatímum,“ segir í tilkynningunni.
Ekkert virkt Covid-19 smit er á Austurlandi en fjórir einstaklingar í sóttkví.