Skip to main content

Jens Garðar og Logi oftast strikaðir út í Norðausturkjördæmi

FréttirThis email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.Fyrst birt 12. des 2024 11:17Uppfært 12. des 2024 11:24

Jens Garðar Helgason, oddviti Sjálfstæðisflokksins, var oftast strikaður út eða færður til í sæti meðal frambjóðenda í Norðausturkjördæmi. Logi Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar, var þar á eftir.


Þetta kemur farm í tölum sem Austurfrétt hefur fengið afhentar frá yfirkjörstjórn Norðausturkjördæmis. Útstrikanir urðu annars sem hér segir:

Framsóknarflokkur
Ingibjörg Ólöf Isaksen 8
Þórarinn Ingi Pétursson 23
Jónína Brynjólfsdóttir 3
Skúli Bragi Geirdal 2

Viðreisn
Ingvar Þóroddsson 5
Heiða Ingimarsdóttir 1
Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir 2

Sjálfstæðisflokkurinn
Jens Garðar Helgason 86
Njáll Trausti Friðbertsson 67
Berglind Harpa Svavarsdóttir 12
Jón Þór Kristjánsson 2

Flokkur fólksins
Sigurjón Þórðarson 18
Katrín Sif Árnadóttir 27
Sigurður H. Ingimarsson 2

Miðflokkurinn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson 23
Þorgrímur Sigmundsson 27
Ágústa Ágústsdóttir 15
Inga Dís Sigurðardóttir 1

Samfylkingin
Logi Einarsson 76
Eydís Ásbjörnsdóttir 2
Sindri Kristjánsson 3

Engar útstrikanir eða breytingar á röð frambjóðenda voru hjá Pírötum, Vinstri grænum, Sósíalistaflokknum eða Lýðræðisflokknum.