Katrín með mest fylgi á Austurlandi
Katrín Jakobsdóttir mælist með mest fylgi forsetaframbjóðenda á Austurlandi. Baldur Þórhallsson fylgir henni þar á eftir.Þetta kemur fram í könnun sem Maskína gerði í síðustu viku. Þar fær Katrín 30,2% á Austurlandi, Baldur 25%, Jón Gnarr 15,3%, Halla Hrund Logadóttir 15%, Halla Tómasdóttir 5,5% og aðrir frambjóðendur 9%.
Fylgi Katrínar og Baldurs er í takt við það sem það mælist á landsvísu. Hjá Jóni Gnarr er það heldur minna.
Austurland er sterkasta landssvæði Höllu Hrundar, en hún var í 10% fylgi á landsvísu í könnuninni. Á sama tíma er fylgi Höllu Tómasdóttur það lægsta á svæðinu, það næst lægsta hjá Katrínu en næst hæsta hjá Baldri. Aðrir frambjóðendur fá einnig frekar mikið fylgi á Austurlandi.
Rétt er að taka fram að svörin á Austurlandi voru 30 talsins. Mest um vert er þó að úrtakið endurspegli samfélagið. Alls svöruðu rúmlega 1.000 manns könnuninni á landsvísu.