Kjörkassarnir að austan komu síðastir
Kjörkassar af Austurlandi komi síðastir á talningarstað í Brekkuskóla á Akureyri í Alþingiskosningunum um síðustu helgi.Þetta kemur fram í fundargerð kjörstjórnar. Öllum kjörkössum frá Borgarfirði til Djúpavogs var safnað saman á Egilsstöðum og flogið með þá til Akureyrar. Þeir komu á talningarstað klukkan tvö aðfaranótt sunnudags.
Þremur mínútum fyrr bárust kassar frá Vopnafirði, Langanesbyggð, hluta Norðurþings og Skútustaðahreppi. Félagar úr björgunarsveitinni Vopna fluttu þá á staðinn.
Fyrstir á vettvang voru skiptikassar frá Akureyri upp úr klukkan hálf sjö á laugardagskvöld. Á slaginu sjö komu kassar úr Svalbarðsstrandarhreppi og um klukkan átta skiptikassar úr Fjallabyggð og Dalvík.
Áður en fyrstu tölur birtust úr kjördæminu á ellefta tímanum bættust við kassar úr Hörgársveit og Grýtubakkahreppi. Af þessu má draga þá ályktun að á þessum atkvæðum hafi fyrstu tölur úr kjördæminu byggt.
Í fundargerðinni kemur einnig fram að þrjú framboð hafi ekki sent fulltrúa á vettvang til að vera viðstaddir undirbúning og talningu atkvæði. Ekki eru skráðir fulltrúar frá Framsóknarflokki, Pírötum eða Frjálslynda lýðræðisflokknum.
Talningu lauk klukkan 9:20 á sunnudagsmorgun.