Leit hætt vegna veðurs

Leit að Axel Jósefssyni Zarioh, sem talinn er hafa fallið frá borði af skipinu Erling KE-140 sem kom inn til hafnar á Vopnafirði á mánudag, hefur verið hætt í dag vegna versnandi veðurs.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Austurlandi kemur fram að vaxandi vindur á Vopnafirði hafi gert leitarskilyrði erfið. Leitað var í dag frá svæðinu frá Tangasporði inn að Sandvík.

Leitað hefur verið án árangurs í dag, líkt og aðra daga frá því á mánudag. Í dag var meðal annars notast við björgunarpramma frá björgunarsveitinni Lífsbjörg í Snæfellsbæ. Pramminn er með glæran botn og í gegnum hann má sjá niður á botn á grunnsævi. Að auki hefur verið leitað meðfram ströndum og sandfjörur eknar.

Leitarskilyrði verða metin í fyrramálið og leit skipulögð út frá aðstæðum. Í tilkynningunni kemur einnig fram að Axel sé á nítjánda aldursári og að hann sé búsettur í Kópavogi.

Eftir því sem Austurfrétt kemst næst var Axel meðlimur í 15 manna áhöfn Erlings KE-140. Skipið er í eigu Saltvers ehf. í Keflavík en Brim hf. leigir skipið og er skráður útgerðaraðili þess. Það hefur verið gert út á grálúðuveiðar og landað á Vopnafirði. Þar var landað úr því rúmu tonni af fiskinum á mánudag. Erling lét úr höfn á Vopnafirði á þriðjudagskvöld.

axel josefsson skipverji

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.