Leitarprammi notaður í dag
Leitarprammi með glugga til að skanna botn á grunnsævi verður í dag notaður við leit að skipverja, sem talinn er hafa fallið útbyrðis af fiskiskipi á leið þess til hafnar á Vopnafirði á mánudag.Leitað hefur verið að manninum linnulítið síðan þá. Víðtæk leit, með aðkomu björgunarsveita og tækja þeirra af Norður- og Austurlandi, var gerð á þriðjudag.
Eftir það var dregið úr umfanginu og hafa leitarflokkar síðan aðallega verið myndaðir af björgunarsveitarfólki frá Vopnafirði.
Það hóf leit að nýju um klukkan hálf átta í morgun. Það nýtur aðstoðar félaga úr björgunarsveitinni Lífsbjörg í Snæfellsbæ sem býr yfir leitartæki sem heitir Coastex, sem er leitarprammi með glugga til að skanna botn á grunnsævi.
Leitarsvæðið er hið sama og síðustu tvo daga, frá Tangasporði að Sandvík auk þess sem leitað verður í sandfjörum á svæðinu. Leitað verður á sjó í dag og meðfram strandlengjunni.
Leit til þessa engan árangur borið og engar vísbendingar gefið. Svæðið var leitað tvívegis í gær, bæði af sjó og landi.
Gert er ráð fyrir að aukinn þungi verði lagður í leitina um helgina, en hún er skipulögð frá degi til dags eftir aðstæðum.