„Mikil þörf er fyrir nýja netagerð“

Unnið er að landfyllingu austan við fiskimjölsverksniðu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað þar sem ný netagerð Fjarðanets hf. mun rísa.



Hið nýja hús netagerðarinnar verður 85 metra langt og 26 metra breitt eða 2200 fermetrar. Framan við húsið verður stálþil þannig að skip sem þurfa þjónustu netagerðarinnar munu leggjast þar að

Öll starfsemi Fjarðanets mun fá inni í nýbyggingunni; netaverkstæðið, gúmmíbátaþjónustan og að auki verður þar aðstaða til að geyma veiðarfæri innan dyra.

Að sögn Jóns Einars Marteinssonar, framkvæmdastjóra Fjarðanets, er ætlunin að bjóða upp á toppaðstöðu í framtíðinni og hin nýja bygging er lykilþáttur í því sambandi.

„Ekkert fer á milli mála að mikil þörf er fyrir nýja netagerð ekki síst vegna þess að bæði skip og veiðarfæri fara sífellt stækkandi og það útheimtir stærri og betri aðstöðu,“ segir Jón Einar.

Sanddæluskipið Dísa flytur efni á svæðið.

„Framkvæmdir við uppfyllinguna hafa tafist um 5-6 mánuði, í fyrsta lagi vegna þess að dýpkunarskipið Perla sökk í Reykjavíkurhöfn, en það átti að sinna dælingu á efni og í öðru lagi vegna þess að heldur meira efni þurfti í uppfyllinguna en gert hafði verið ráð fyrir.

Nú er áætlað að stálþilið verði rekið niður síðar á þessu ári og síðan þarf landið að síga áður en byggingaframkvæmdir hefjast. Þetta er allt komið á beinu brautina núna eftir óvæntar tafir og vonandi eiga allar framkvæmdir eftir að ganga vel.“

Ljósmynd: Smári Geirsson

 

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.