Minna Austfirðinga á að gleyma sér ekki í gleðinni
Aðgerðastjórn almannavarnarnefndar Austurlands minnir íbúa í fjórðungnum að halda áfram árvekni sinni í baráttunni við Covid-19 þótt talsvert hafi verið slakað á ráðstöfunum samkomubanns.„Örlítið hefur slaknað á ráðstöfunum sóttvarnalæknis síðustu daga og vikur. Okkur er nú frjálst að fara í sund og jafnvel leikfimi auk þess sem ferðamenn kunna að sjást á vappi hér um fjórðunginn. Um breytingu er að ræða sem við í sameiningu höfum unnið fyrir,“ segir í tilkynningu aðgerðastjórnarinnar í dag.
„Svo halda megi í þann árangur þurfum við að gæta að því að gleyma okkur ekki í gleðinni heldur horfa nú inn á við og sýna ábyrgð hvert og eitt. Það er mikilvægt sem aldrei fyrr að við höldum í þær persónulegu sóttvarnir sem enn eru við lýði, svo sem tveggja metra regluna, handþvott og spritt. Höldum keik inn í sumarið en gerum það með varkárni þess sem veit hvað hann hefur og er ákveðinn í að glutra því ekki niður.
Ekki hefur greinst smit á Austurlandi frá 9. apríl og því er enginn í einangrun. Samkvæmt upplýsingum á Covid.is eru 15 einstaklingar í sóttkví á svæðinu.