Mögulegar rafmagnstruflanir á morgun

Rarik varar við mögulegum rafmagnstruflunum frá Vopnafirði suður í Berufjörð vegna viðhaldsvinnu hjá Landsneti.

Á meðan vinnunni stendur verður svæðið rofið frá byggðalínunni og treyst á rafmagn frá virkjunum á svæðinu.

Í tilkynningu frá Rarik segir að líkur á truflunum séu litlar en samt fyrir hendi. Vinnan stendur frá klukkan átta í fyrramálið til sex síðdegis.

Demo

Markmið Austurfréttar er að byggja upp vef sem tengir saman Austfirðinga, sama hvar þeir eru niðurkomnir og flytja fréttir úr þeirra samfélagi.

Samfélagsmiðlar

Þessi síða notar vafrakökur (e. cookies) til þess að upplifun þín af henni sé sem best og til þess að hjálpa okkur að veita þér sem besta þjónustu.