Mögulegar rafmagnstruflanir á morgun
Rarik varar við mögulegum rafmagnstruflunum frá Vopnafirði suður í Berufjörð vegna viðhaldsvinnu hjá Landsneti.Á meðan vinnunni stendur verður svæðið rofið frá byggðalínunni og treyst á rafmagn frá virkjunum á svæðinu.
Í tilkynningu frá Rarik segir að líkur á truflunum séu litlar en samt fyrir hendi. Vinnan stendur frá klukkan átta í fyrramálið til sex síðdegis.