Nauðgunarkæra í rannsókn
Lögreglan á Egilsstöðum rannsakar nauðgunarkæru sem lögð var fram um seinustu helgi. Kona kærði karlmann sem hún segir hafa brotist inn til sín aðfaranótt sunnudags. Lögreglan rannasakar einnig kæru vegna dýraníðs.
RÚV greindi frá málinu í gær. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar og leitaði aðstoðar hjá nágranna sínum. Maðurinn var handtekinn og sleppt að lokinni yfirheyrslu.
Þá rannsakar lögreglan einnig kæru um dýraníð sem greint var frá í seinustu viku en skorið var á kynfæri hryssu í hesthúsunum í Fossgerði.
Í samtali við Agl.is í dag sagði Óskar Bjartmarz, yfirlögregluþjónn, að málin tvö væru í rannsókn. Engu væri við það að bæta.