Oddvitinn hjólaði yfir Öxi: Viljum gera baráttuna sýnilega
Andrés Skúlason, oddviti Djúpavogshrepps, hjólaði ásamt tveimur öðrum frá Djúpavogi, yfir Öxi og til Egilsstaða á laugardag. Með ferðinni vildi hann vekja athygli á baráttu fyrir heilsársvegi yfir Öxi.
Með Andrési í för voru Bryndís Reynisdóttir, varaoddviti og ferðamálafulltrúi og Þorbjörg Sandholt, formaður brottfluttra Djúpavogsbúa í Reykjavík. Þau lögðu af stað um klukkan 9:30 um morguninn og komu í Egilsstaði rúmum fimm tímum síðar.
„Við fengum vind í bakið inn Berufjörðin, tókum viðgerðarhlé á Melshorni
hjá Ólafi Áka bónda, lentum í þoku á Háöxinni og smá mótvind í restina,“ sagði Andrés í samtali við Agl.is um ferðina. Á Egilsstöðum tók Gunnar
Jónsson, bóndi og formaður bæjarráðs á móti hópnum, gaf honum öxi og
mjólkurvörur.
Fyrirhugað var að bjóða út nýjan veg yfir Öxi seinasta haust en
framkvæmdum var frestað vegna almenns niðurskurðar í samgöngumálum. Rætt
verður um nýja samgönguáætlun á Alþingi í haust og segir Andrés
tímabært að minna aftur á Öxi sem setja eigi í forgang.
„Við höfum staðið í þessari baráttu í mörg herrans ár. Við vildum brjóta
hana upp og gera hana sýnilega með að hjóla leiðina.“
Aðspurður hvort ekki hefði verði þægilegra að hjóla frá Egilsstöðum til
að minnka brattann upp úr Berufirðinum sagði Andrés: „Við veljum ekkert alltaf auðveldustu leiðina. Við höfum sýnt að við
erum tilbúin að berjast fyrir hlutunum.“
“