Þreifingar hafnar um myndun meirihluta á Fljótsdalshéraði
Þreifingar milli Framsóknarflokksins og Héraðslistans um myndun meirihluta í bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs hófust strax og úrslit í kosningnum lágu fyrir.Samkvæmt heimildum agl.is hófust þreifingarnar um meirihluta myndun Framsóknarflokksins og Héraðslistans strax og úrslit lágu fyrir seint í gærkvöldi. Samkvæmt sömu heimildum var samþykkt í hópi nýrra bæjarfulltrúa Framsóknarflokksins að leita fyrst til Héraðslistans um meirihlutamyndun.
Forsvarsmenn listanna vilja ekki staðfesta þessar fréttir að svokomnu máli.