Risavaxinn loftbelgur blasti við Austfirðingum
Loftbelgur, notaður til rannsókna á himingeimnum blasti við Austfirðingum í gærkvöldi. Belgurinn er á stærð við íþróttavöll og getur borið á fjórða tonn.Loftbelgurinn er hluti af stóru alþjóðlegu rannsóknaverkefni sem gert er út í sumar frá Kiruna í norðurhluta Svíþjóðar. Belgurinn sem Austfirðingar sáu í gærkvöldi kallast Sunrise-III. Hann var sendur á loft frá Kiruna um klukkan 16:22 að íslenskum tíma eða 18:22 að staðartíma í fyrradag.
Belgurinn sást víða af Austurlandi frá því um klukkan níu í gærkvöldi og fram yfir miðnætti. Hann svífur í 123.000 feta eða um 37 km hæð. Austfirðingar ráku margir upp stór augu enda endurkastaði hvítur belgurinn kvöldsólinni og var því áberandi á himingeiminum. Íbúahópar fylltust af myndum af fyrirbærinu á himni og vangaveltum um hvað væri á ferðinni.
Á vef Bandarísku geimrannsóknastofnunarinnar NASA og Max Planck stofnunarinnar í Þýskalandi er hægt að lesa nánar um verkefnið og fylgjast með ferli belgsins. Þær standa að rannsóknunum ásamt rannsóknastofnunum í Japan og Spáni. Þær stóðu áður fyrir rannsóknum, sem eru hluti af sama verkefni, árin 2009 og hafa alið að sér yfir 100 vísindagreinar.
Belgurinn sem nú er á lofti átti upphaflega að fara í loftið sumarið 2022 en þá kom upp bilun. Honum er nú ætlað að fljúga til Kanada. Í nótt flauga hann yfir Ísland til vesturs og var í morgun kominn vestur fyrir Látrabjarg.
Miðað við þann feril kom belgurinn upp að landinu á Víknaslóðum, sveif þaðan norðvestur fyrir Vopnafjörð en beygði þaðan til suðvesturs í boga yfir landið yfir öræfin, Hofsjökul og Langjökul áður en hann sveif út yfir Snæfellsnes.
Í lýsingu NASA kemur fram að loftbelgurinn sé á stærð við íþróttaleikvang og geti borið rúmlega 3,6 af farmi. Það nýtist undir rannsóknatækni frá bæði stofnuninni og háskólum víða um heim. Búnaðurinn í Sunrise-III er ætlaður til að taka myndir af sólinni í hárri upplausn. Þær nýtast meðal annars til að mæla segulsvið hennar, hitastig og veltihraða.
Sunrise-III er hluti af stærra verkefni sem NASA stendur fyrir í norðanverði Svíþjóð en loftbelgirnir verða alls fjórir að tölu. Sá fyrsti fór í loftið í lok maí og lenti viku síðar í Kanada. Sá næstu var sendur í loftið á þriðjudag, daginn á undan Sunrise-III en flaug norður fyrir Ísland og þvert yfir Grænland.
Í umfjöllun NASA segir að aðstæður á norðurslóðum, þar sem sólin sest ekki á sumrin, henti sérstaklega vel fyrir flug loftbelgjanna því þrýstingsbreytingar sem fylgi hitabreytingum milli dags og nætur geta annars skapað vandræði. Mest um vert er þó óhindrað útsýni til sólarinnar í nokkra daga.
Fjórði og síðasti loftbelgurinn í verkefninu er nú tilbúinn til flugs og ætti því ekki að koma á óvart þótt hann sæist víða af landinu ef áfram verður heiðskýrt.