Sex í sóttkví
Sex einstaklingar eru í sóttkví vegna Covid-19 veirunnar á Austurlandi. Sá fjöldi hefur haldist nokkuð stöðugur þessa vikuna.Enginn er í einangrun en þeir átta sem smituðust af veirunni á svæðinu hafa náð bata. Síðast greindist smit á svæðinu þann 9. apríl.