Síldarvinnslan fékk tvenn verðlaun á Íslensku sjávarútvegsverðlaununum
Tvenn verðlaun féllu í skaut Síldarvinnslunnar í Neskaupstað þegar Íslensku sjávarútvegsverðlaunin voru afhent í síðustu viku. Alls voru veitt sautján viðurkenningar til þeirra sem þykja hafa skarað fram úr í fiskveiðum og sjávarútvegi bæði hérlendis og erlendis.
Í fyrsta lagi var Síldarvinnslan verðlaunuð fyrir framúrskarandi íslenska fiskvinnslu. Í öðru lagi var skipstjórinn Sturla Þórðarson, á Beiti NK, verðlaunaður fyrir að vera framúrskarandi íslenskur skipstjóri.
HB Grandi, sem er með umfangsmikla útgerð á Vopnafirði, fékk verðlaun sem framúrskarandi íslensk útgerð.