Smitið í Norrænu gamalt
Jákvætt sýni sem greindist úr farþega Norrænu síðasta fimmtudag reyndist gamalt og viðkomandi því ekki smitandi. Aðgerðastjórn almannavarnanefndar Austurlands hrósar Austfirðingum fyrir ábyrga afstöðu að undanförnu.Þetta kemur fram í tilkynningu sem aðgerðastjórnin sendi frá sér í gær.
Úr þeim ríflega 400 sýnum sem tekin voru við komu Norrænu til Seyðisfjarðar á fimmtudag reyndist eitt jákvætt. Strax í upphafi var talið að um gamalt smit væri að ræða og viðkomandi því ekki smitandi, en engu að síður settur í einangrun.
Það hefur nú verið staðfest að smitið var ekki virkt og einstaklingurinn því ekki smitandi um borð. Ekkert virkt smit er nú í fjórðungnum.
Í tilkynningu er íbúum og ekki síður fyrirtækjum, stofnunum og félagasamtökum hrósað fyrir ábyrga afstöðu í hvívetna til þeirra reglna og leiðbeininga sem gefnar hafa verið. Hrósið byggir meðal annars á viðbrögðum þeirra fjölmörgu sem skipulagt höfðu stærri viðburði hverskonar, tónleika, bæjarhátíðir, íþróttakeppnir og svo framvegis. Aðgerðastjórnin telur viðbrögðin í öllum tilvikum hafa verið til fyrirmyndar og borið þess merki að allir vilji gera hlutina vel og rétt.