Smitrakningarsmáforritið skiptir máli
Ekkert covid-19 smit greindist á Austurlandi síðasta sólarhring. Austfirðingar eru minntir á að fylgja áfram leiðbeiningum sóttvarnayfirvalda.Þetta kemur fram í tilkynningu aðgerðarstjórnar almannavarnanefndar Austurlands.
Af þeim átta sem smitast hafa eru tveir enn í einangrun en sex er batnað. Átján eru í sóttkví, einum fleiri en í gær.
Aðgerðastjórn hvetur alla íbúa fjórðungsins til að gæta þess áfram að virða leiðbeiningar sóttvarnayfirvalda. Þannig aukist líkur á að hægt verði að hrinda í framkvæmd tilslökunum sem boðaðar hafa verið 4. maí næstkomandi.
Þá er æskilegt að þeir, sem það eiga eftir, hlaði smitrakningarappinu niður í símana sína. Appið getur skipt sköpum þegar á reynir að geta hratt og vel sinnt smitrakningu við þau vonandi fáu smit sem upp kunna að koma. Það má meðal annars finna á vefslóðinni https://www.covid.is/app/is